Leikurinn var frekar tilþrifalítill og það var ekki mikið sem gladdi augað. Gestirnir byrjuðu leikinn betur og höfðu yfirhöndina fyrstu mínúturnar. Á 6. mínútu leiksins fengu Haukar dauðafæri er þeir fengu frítt skot inn í teig heimamanna en skot þeirra fór í varnarmann KA og yfir markið.
KA- menn komust betur inn í leikinn eftir því sem á leið fyrri hálfleikinn. Á 25. mínútu fengu heimamenn fínt færi, David Diztl átti þá fína sendingu á Guðmund Óla Steingrímsson sem var kominn í ákjósanlegt skotfæri inn í teig gestanna en hitti boltann illa sem fór hátt yfir markið.
Staðan markalaus í hálfleik eftir bragðdaufan fyrri hálfleik.
Seinni hálfleikur hófst á sömu línu og sá fyrri, Haukar voru meira með boltann en gekk illa að skapa sér færi. Heimamenn komu sér þó fljótlega inn í leikinn að nýju og færðu sig framar á völlinn.
Það var svo á 73. mínútu að sigurmark leiksins kom. Haukar Heiðar Hauksson átti þá fína sendingu inn í teig gestanna eftir fína sókn KA- manna, í teignum var mættur David Disztl og skoraði hann auðveldlega af stuttu færi og kom heimamönnum yfir. Eflaust mikill léttir fyrir Ungverjann að ná loksins marki fyrir KA.
Lítið markvert gerðist eftir mark heimamanna. Haukar náðu lítð að pressa að marki heimamanna í lokin og leikurinn fjaraði út með sigri KA, 1-0.
Eftir leikinn eru KA- menn komnir í 4. sæti deildarinnar með tíu stig eftir sex umferðir.