KA með Englending á reynslu

Enskur knattspyrnumaður að nafni Dan Stubbs er nú undir smásjánni hjá 1. deildar liði KA sem undirbýr sig að kappi þessa dagana fyrir Íslandsmótið í knattspyrnu sem hefst næstu helgi. KA lék æfingaleik gegn Fylki í gær sem tapaðist 0:1 og þar kom umræddur Stubbs til sögunnar í liði KA.

Samkvæmt heimasíðu KA kom Stubbs norður með liðinu í gær og mun æfa með félaginu næstu daga, áður en ákvörðun verður tekinn með framhaldið.

Nýjast