KA gerir nýjan samning við N1

Gengið var frá nýjum fimm ára samningi milli knattspyrnudeildar KA og N1 um áframhaldandi samstarf á Hótel KEA sl. föstudag. Samningurinn felur í sér stuðning N1 um framkvæmd N1-mótsins auk þess sem félagið verður næstu fimm árin aðal styrktaraðili knattspyrnudeildar KA.

Samstarf Olíufélagsins og síðar N1 um ESSO-mótið og síðar N1-mótið hefur verið farsælt í 25 ár og með samningnum sem var undirritaður sl. föstudag verður framhald á því næstu fimm árin í það minnsta – eða til 2015. Þetta kemur fram á heimasíðu KA.

Nýjast