Gengið var frá nýjum fimm ára samningi milli knattspyrnudeildar KA og N1 um áframhaldandi samstarf á Hótel KEA sl. föstudag. Samningurinn felur í sér stuðning N1 um framkvæmd N1-mótsins auk þess sem félagið verður næstu fimm árin aðal styrktaraðili knattspyrnudeildar KA.