KA ferðaðist um 7.490 km. meira en Íslandsmeistararnir

Mynd: Byggðastofnun/Facebook
Mynd: Byggðastofnun/Facebook

Á fjasbókarsíðu Byggðastofnunar er áhugaverður pistill sem kallast „Nördamoli á föstudegi um ferðalög íþróttaliða“.

Í pistlinum er farið yfir mismunandi löng ferðalög sem knattspyrnulið þurfa að leggja í til að taka þátt í Íslandsmótinu í fótbolta.

„Íslandsmótið í knattspyrnu var háð í sumar eins og undanfarin rúmlega hundrað ár. Að horfa á einn fótboltaleik er góð skemmtun sem tekur kannski tvo tíma með öllu fyrir okkur áhorfendur. Fyrir leikmenn og starfsmenn leiksins tekur þetta mun lengri tíma eins og gefur að skilja. Í flestum keppnum er leikið heima og að heiman og því getur oft verið aðalmálið að komast á útivöllinn og aftur heim. Í meistaraflokki karla og kvenna í sumar þurftu liðin að ferðast ríflega 413 þúsund km. til að leika á útivöllum og koma sér aftur heim. Það samsvarar u.þ.b. leiðinni til tunglsins, reyndar bara aðra leiðina, og ríflega 300 ferðum hringinn í kringum landið. Þar af keyrðu 10 „ferðaglöðustu“ liðin rétt tæplega 100 þúsund km,“ segir m.a. í pistlinum og þar er eftirfarandi upptalning birt:

• Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir – í 2. deild kvenna - 12.020 km.

• Leiknir Fáskrúðsfirði – í 2. deild karla – 11.336 km.

• Fjarðabyggð í 2. deild karla – 11.336 km.

• Einherji á Vopnafirði í 2. deild kvenna – 10.852 km.

• Einherji á Vopnafirði í 3. deild karla – 10.602 km.

• Höttur/Huginn á Egilsstöðum og Seyðisfirði í 3 deild karla – 10.596 km.

• Vestri á Ísafirði í 1. deild karla – 9.584 km.

• Þór Akureyri í 1. deild karla – 9.210 km.

• Sindri á Hornafirði í 3. deild karla – 9.160 km

• Völsungur á Húsavík í 2. deild karla – 8.538 km.

Þá er bent á að ferðavegalengd liða í efstu deild karla hafi verið 21.696 km. Þar af hafi KA þurft að ferðast 8.490 km. eða 39% af heildar vegalengdinni. 

„Til samanburðar þurftu Íslandsmeistarar Víkings í karlaflokki aðeins að ferðast ríflega 1.000 km en stærstur hluti af þeim kílómetrum var ferðin norður til að spila við KA. Þrjá deildir skera sig úr með mikil ferðalög það eru 2. deild karla, 3. deild karla og 2. deild kvenna, með á bilinu 73. þúsund - 87 þúsund km. samtals, enda liðin í þessum deildum dreifð vítt og dreift um landið.“ 

 


Athugasemdir

Nýjast