07. ágúst, 2010 - 09:18
Fréttir
Það verður hart barist á toppi og botni 1. deildar karla á Íslandsmótinu í knattspyrnu í dag þar sem þrír leikir fara fram.
KA fær botnlið Njarðvíkur í heimsókn á Akureyrarvöll kl. 14:00. KA er núna fimm stigum frá fallsæti með 16 stig í
áttunda sæti en Njarðvík hefur 11 stig ásamt Fjarðabyggð í neðstu sætunum. KA vann gríðarlega mikilvægan sigur gegn ÍR
í síðustu umferð með marki á lokasekúndum leiksins og freistar þess að fylgja þeim sigri eftir í dag.
Á sama tíma sækir Þór Víking R. heim á Víkingsvöllinn. Með sigri í dag getur Þór endurheimt toppsæti
deildarinnar, en Leiknir R. komst á toppinn í gær með 1:0 sigri gegn ÍA. Leiknir hefur 31 stig á toppnum en Þór og Víkingur 28 stig en
leikinn til góða í dag.
Þá mætast Grótta og Fjarðabyggð á Gróttuvelli í dag í miklum fallbaráttuslag.