KA fær HK í heimsókn í kvöld- Þór sækir Hauka heim

KA leikur gegn HK á Akureyrarvelli í kvöld og Þór sækir Hauka heim á Ásvöllum þegar 11. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu fer fram. Leikur KA og HK er gríðarlega mikilvægur fyrir heimamamenn. Eftir tapið gegn Víkingi R. sl. föstudag má KA illa við því að tapa stigum í kvöld ef liðið ætlar sér að vera með í toppbaráttunni í deildinni í sumar.

Fyrir leikinn eru KA og HK jöfn að stigum í deildinni með 17 stig, KA í 4. sæti á betra markahlutfalli en HK í 5. sæti. Leikur KA og HK hefst kl. 19:15 á Akureyrarvelli.

Þór á afar erfiðan leik fyrir höndum þegar þeir sækja Hauka heim í kvöld. Haukar eru í öðru sæti deildarinnar, þremur stigum frá toppsætinu en Þór hefur níu stig í neðri hluta deildarinnar. Þór vann mikilvægan 3-2 sigur gegn Aftureldingu sl. fimmtudag og ætti sá sigur að auka sjálfstraust leikmanna Þórs fyrir leikinn í kvöld.

Leikur Hauka og Þórs hefst kl. 18.30 á Ásvöllum.

Nýjast