Jón Stefánsson byggingariðnfræðingur leiðir F-listann í Eyjafjarðarsveit fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Jón var einnig oddviti listans fyrir síðustu kosningar. Á vef Rúv kemur fram að listinn hafi fengið 47,8 prósent atkvæða og fjögur sæti af sjö í sveitarstjórn í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Halldóra Magnúsdóttir leikskólakennari er í öðru sæti listans og Linda Margrét Sigurðardóttir lögfræðingur skipar þriðja sætið.
Listinn í heild:
1. Jón stefánsson Byggingariðnfræðingur
2. Halldóra Magnúsdóttir Leikskólakennari
3. Linda Margrét Sigurðardóttir Lögfræðingur
4. Hermann Gunnarsson Bóndi
5. Rósa Margrét Húnadóttir Þjóðfræðingur
6. Karl Jónsson Framkvæmdastjóri
7. Hákon Bjarki Harðarson Bóndi
8. Hafdís Inga Haraldsdóttir Framhaldsskólakennari
9. Tryggvi Jóhannsson Bóndi
10. Jóhannes Ævar Jónsson Bóndi
11. Líf K. Angelica Ármannsdóttir Nemi í HA
12. Hulda Magnea Jónsdóttir Kennari 13. Sigmundur Guðmundsson Lögmaður 14. Hólmgeir Karlsson Framkvæmdastjóri