Inntök í hesthúsum og víðar sprungið í frosthörkunum

Nokkuð hefur borið á því í frosthörkum undanfarna daga að inntök í hesthúsum og víðar hafa sprungið eða verið nálægt því að springa. Í frostaköflum eins og þeim sem nú ganga yfir er mjög mikilvægt að eigendur fasteigna og þá ekki síst þeirra húsa sem eru að jafnaði lítið kynnt eins og t.d. hesthús, tryggi að nægilega heitt sé í inntaksrýmum til þess að inntök nái ekki að frjósa.

Vanræksla á þessu er á ábyrgð húseigenda og verða þeir að bera kostnaðinn af viðgerðum komi til þess að inntök springi vegna frosts. Þetta kemur fram á vef Norðurorku.

Nýjast