Innritun í leikskóla haustið 2023

Mikilvægt er að öllum umsóknum um leikskóla og umsóknum um flutning milli leikskóla verði skilað inn fyrir 1. febrúar n.k. Sótt er um á rafrænu formi í þjónustugátt Akureyrarbæjar.

Aðalinnritun í leikskóla á Akureyri fyrir haustið 2023 fer fram í mars-og aprílmánuði n.k. Þá fá foreldrar nýrra nemenda send innritunarbréf frá leikskólunum í tölvupósti.

Innritað er í hvern skóla eftir kennitölum umsækjenda. Þar sem fjöldi umsókna í hvern skóla ræður að stórum hluta aldursamsetningu á deildum verður ekki ljóst fyrr en eftir 15. febrúar hvaða leikskólar koma til með að innrita 12 mánaða gömul börn, fyrir utan Árholt/Tröllaborgir og Hulduheima Kot, sem eingöngu innrita yngstu börn leikskóla.

Gera má ráð fyrir að aðlögun geti hafist síðari hluta ágústmánaðar þ.e. eftir að verðandi grunnskólabörn hætta í leikskólunum. Tímalengd aðlögunartímabilsins fer eftir fjölda barna í aðlögun og því má gera ráð fyrir að aðlögun geti staðið yfir fram í októbermánuð.

Jafnframt er foreldrum bent á að fræðslu-og lýðheilsuráð hefur samþykkt að taka upp heimgreiðslur til foreldra frá 1 september 2023. Um er að ræða tilraunaverkefni til 2ja ára og byggir á því að þeir foreldrar sem hvorki nýta leikskóla né dagforeldra fyrir börn sín, hafi rétt á að sækja um heimgreiðslur. Foreldrar eiga rétt á að sækja um heimgreiðslur frá 12 mánaða aldri barns. Nánari upplýsingar um heimgreiðslur og umsóknarferli verða auglýstar síðar.

Þetta kemur fram á heimasíðu Akureyrarbæar og er áréttað hér.


Athugasemdir

Nýjast