Íbúar snyrti gróður við lóðamörk

Mynd/Akureyri.is
Mynd/Akureyri.is

Byggingarfulltrúi Akureyrarbæjar og forstöðumaður umhverfismála skora á lóðarhafa og umráðendur lóða að snyrta gróður sem nær út fyrir lóðarmörk að götum, gangstéttum og stígum og þar sem hann veldur óþægindum fyrir gangandi vegfarendur, umferð ökutækja og skyggir á umferðarskilti og götumerkingar,með tilvísun í byggingarreglugerð.

Segir á vef Akureyrarbæjar að hæð undir gróður við gangstéttar skuli ekki vera minni en 2,8 metrar og við akbraut 4,50 metrar.


Athugasemdir

Nýjast