Tilkynning barst Lögreglunni á Norðurlandi eystra kl. rúmlega 3 í nótt um mann sem væri að handleika vopn á almannafæri á Svalbarðseyri.
Vopnaðir lögreglumenn fóru frá Akureyri til að huga að þessu. Eftir nokkra rannsóknarvinnu bárust böndin að húsi í þorpinu og reyndist maðurinn, sem tilkynntur var um, vera þar. Hann var í annarlegu ástandi en sýndi ekki mótspyrnu og fannst vopnið í fórum hans. Maðurinn var handtekinn og færður í fangageymslu meðan þess er beðið að hann komist í ástand til að gefa skýrslu. Ekki er vitað á þessari stundu hvað manninum gekk til og ekki er talið að fleiri tengist málinu með beinum hætti.
Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki unnt að veita frekari upplýsingar að svo komnu segir lögregla á facebooksíðu sinni.