Hymnodiu heldur tónleika í Akureyrarkirkju annað kvöld

Hymnodia fagnar sumri með fallegum tónleikum annað kvöld  í Akureyrarkirkju.
Hymnodia fagnar sumri með fallegum tónleikum annað kvöld í Akureyrarkirkju.

Hymnodia fagnar sumri með gullfallegri tónlist að kvöldi miðvikudagsins 22. maí nk. Á dagskrá verður barokk eftir tékkneska tónskáldið František Tůma, tónlist frá miðri síðustu öld eftir Svíann Lars-Erik Larsson og ný tónlist eftir Sigurð Sævarsson, m.a. verk sem hann samdi fyrir Hymnodiu.

Einnig mun kórinn flytja þekkt íslensk sumarlög og minnast góðs vinar kórsins, söngvarans Jóns Þorsteinssonar, sem verður jarðsunginn á tónleikadag.

Með kórnum leika Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir á selló og Eyþór Ingi Jónsson, sem jafnframt stjórnar kórnum, á orgel. 

Tónleikarnir hefjast kl 20,  aðgangseyrir er 3.500 krónur.

Efnisskrá

Sigurður Sævarsson (1963) 

Tears of stone (2020)

 

František Tůma (1704-1774)

Stabat mater (ca 1750)

                        I: Stabat mater

                II: O quam tristis

                III: Quis est homo

                IV: Pro peccatis suae gentis - Vidit suum

                V: Eia Mater

                VI: Sancta Mater

                VII: Fac me tecum

                VIII: Virgo virginum præclara

                IX: Christe, cum sit hinc exire,

                X: Quando corpus morietur

 

Lars-Erik Larsson (1908-1986)

Agnus Dei (1955)

 

Sigurður Sævarsson 

O sacrum convivium (2018 - fyrir Hymnodiu)

 

Sigurður Sævarsson - Hallgrímur Pétursson (1614-1674)

Hvíli ég nú síðast huga minn (2007)

 

Þorvaldur Blöndal (1906-1932) - Davíð Stefánsson (1895-1964)

Nú sefur jörðin (útg. 1938)

 

Albert Lister Peace (1844-1912) - Sigurbjörn Sveinsson (1878-1950)

Ó, ást, sem faðmar allt - flutt í minningu Jóns Þorsteinssonar (1951-2024)

 

Ingi T. Lárusson (1892-1946) - Páll Ólafsson (1827-1905)

Sumarkveðja (1899)

 

 


Athugasemdir

Nýjast