Hvetja Akureyringa til að hreyfa sig í náttúrunni

Þorbergur og Eva í fjallgöngu. Myndin er tekin upp á Hest sem er fjallstoppur í Eyjafjarðasveit.
Þorbergur og Eva í fjallgöngu. Myndin er tekin upp á Hest sem er fjallstoppur í Eyjafjarðasveit.

Hjónin Þorbergur Ingi Jónsson og Eva Birgisdóttir eru að fara af stað með göngu- og útivistarprógram á Akureyri og nágrenni þann 1. júní sem miðar að því að fá byrjendur til að hreyfa sig í náttúrunni. „Hugsjón okkar er að gera Akureyri og nágrenni að útivistarparadís því umhverfið okkar bíður svo sannarlega upp á það,“ segir Þorbergur Ingi.

„Við erum með fjöll, dali og stíga í bakgarðinum sem bíða okkar og við viljum auka tækifæri fólks og kynna það fyrir þessari útivistarparadís sem við tölum um. Margir eru að nýta okkar flottustu stíga í kringum bæinn en það er hópur fólks sem hægt er að hvetja áfram og vekja athygli á þessu. Okkar prógram miðar einmitt að þeim sem eru að stíga sín allra fyrstu skref í útivist og þá sem hafa aðeins verið að hreyfa sig,“ segir Þorbergur.

Fjórar leiðir í boði

Hægt er að velja um fjórar leiðir eftir því hversu fólk er langt komið í hreyfingu:

Leið 1: Hentar fólki sem vill bæta líkamlegt form og heilsu en hefur lítið verið að hreyfa sig. Hér er aðallega um léttar gönguferðir að ræða en markmiðið er að í lok sumars geti fólk farið í 10-15 km fjallgöngu. Í þessu prógrammi er byrjað mjög rólega og hentar það vel þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í útivist og hreyfingu. Æfingar 2-3 sinnum í viku.

Leið 2: Fyrir þá sem hafa einhverja reynslu af fjallgöngum eða hafa verið að hreyfa sig eitthvað í gegnum tíðina og vilja bæta formið. Hér blandast fjallgöngur og létt skokk saman í æfingarprógrammi. Æfingar 2-3 sinnum í viku.

Leið 3: Fjölskyldan á fjöll 1. Ganga á 5 fjöll með fjölskyldunni (má líka fara ein/einn) fyrir lok sumars. Gengið verður í nágrenni Akureyrar með fallegu útsýni. Létt prógram með æfingum 2 sinnum í viku sem fjölskyldan tekur saman (ef hægt er) ásamt því að ganga á fjöllinn 5. Fyrsta fjallið sem gengið er á verður með leiðsögn.

Fjölskyldan á fjöll 2: Fyrir fjölskyldur með yngri börn og treysta sér ekki upp á fjallstoppa og (hér má líka fara ein/einn). Gamli, Fálkafell eru á meðal markmiða auk styttri æfinga í hverri viku.

Miklir náttúruunnendur og fjallagarpar

Prógramið er fyrir fjölskyldur og er ekki eingöngu hugsað sem hreyfing heldur aukin samvera fjölskyldunnar í náttúrunni sem er heilsusamleg öllum aðilum. Sjálf eru Þorbergur og Eva miklir náttúruunnendur og fjallagarpar.

„Við höfum mikla ástríðu fyrir því að kynna fólki fyrir þessari dásamlega umhverfi og náttúru sem við höfum allt í kringum okkur,“ segja þau. Þorbergur Ingi er margreyndur hlaupari og fremsti utanvegahlaupari landsins og er hæst rankaður á svokölluðum ITRA styrkleikalista. Hann á fjölmörg brautarmet og m.a. í Laugaveginum þar sem hann hljóp árið 2015 á tímanum 3:59 klst. Þorbergur hefur þjálfað hlaupahópa í mörg ár með áherslu á utanvegar og fjallahlaup með góðum árangri. Eva er fjallahlaupari og er í Meistaranámi í Íþrótta- og heilsufræðum og vinnur nú að lokaverkefni sínu en það er einmitt bók um gönguleiðir á Akureyri og nágrenni.

Hægt er að skrá sig á námskeiðið á fjallahlaupathjalfun@gmail.com og fá frekari upplýsingar á Facebooksíðu þeirra hjóna undir heitinu Fjallahlaupaþjálfun Þorbergs Inga og Evu Birgis.

 


Athugasemdir

Nýjast