Húsasmiðjan skellir í lás á Húsavík og Dalvík

Húsasmiðjan á Húsavík. Mynd/epe
Húsasmiðjan á Húsavík. Mynd/epe

Um næstu áramót verður verslunum Húsasmiðjunnar á Dalvík og Húsavík lokað og rekstur þeirra í framhaldinu sameinaður nýrri þjónusutmiðstöð Húsasmiðjunnar fyrir Norðurland sem opnar við Freyjunes á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu, þar kemur fram að öllum fastráðnum starfsmönnum á Húsavík og Dalvík verði boðið að starfa áfram í nýju versluninni. 

„Rekstrargrundvöllur Húsasmiðjunnar á Dalvík og Húsavík hefur hins vegar reynst þungur undanfarin ár þrátt fyrir veljvilja bæði heimamanna og fyrirtækisins. Hörð samkeppni, aukin vefverslun og fleiri breytingar á markaði hafa gert það að verkum að rekstur byggingarvöruverslana og timbursölu á sér ekki grundvöll á þessum stöðum,“ segir í tilkynningunni. 

Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar segir ákvörðun þessa vera þungbæra.

„Við munum þrátt fyrir þessa breytingu kappkosta að þjónusta viðskiptavini á Norðurlandi vel, þar á meðal á Dalvík og Húsavík. Jafnframt mun söluskrifstofa verða opnuð á Húsavík í upphafi næsta árs með ráðgjöf fyrir bæði einstaklinga og fyrirtæki,“ segir hann og bætir við að fyrir liggi að styrkja vefverslun Húsasmiðjunnar enn frekar. 


Athugasemdir

Nýjast