Hugmyndasamkeppni um nýtingu skóglendis

Eyjafjarðarsveit kallar eftir hugmyndum íbúa.
Eyjafjarðarsveit kallar eftir hugmyndum íbúa.

Eyjafjarðarsveit festi nýlega kaup á skóglendi ofan Hrafnagilshverfis en áður tilheyrði aðeins lítill hluti þess sveitarfélaginu. Á þessu svæði er m.a. Aldísarlundur sem um árabil hefur nýst skólasamfélaginu afar vel. Með stækkun þessa svæðis, ofan Aldísarlundar, opnast ýmsir möguleikar til útivistar, kennslu og leikja bæði fyrir skólasamfélagið og íbúa.

Sveitarstjórn hefur áhuga á að útfæra hugmyndir og ráðast í framkvæmdir á svæðinu sem væru til þess fallnar að auka samveru og útivist íbúanna. Á vef Eyjafjarðarsveitar kemur fram að sveitarstjórn leiti því til íbúa sveitarfélagsins eftir hugmyndum um hvernig best væri að nýta svæðið.

„Sveitarstjórn sér þetta fyrir sér sem tækifæri fyrir einstaklinga, skólana og félög í sveitinni að vinna saman að hugmyndum um svæðið. Mikilvægt er að hafa í huga jákvæða stefnu sveitarfélagsins í umhverfismálum, heilsueflingu og markmið um að hér sé gott að búa og öllum líði vel,“ segir á vef sveitarfélagsins. Hægt er að senda hugmyndir á netfangið esveit@esveit.is fram til mánudagsins 6. nóvember.

 

Nýjast