Hríseyingar vilja sjóvarnargarðinn í lag

Hrísey.
Hrísey.

Á fundi hverfisráðs Hríseyinga var ítrekað mikilvægi þess að gert verði við sjóvarnargarðinn, sbr. 104. fund hverfisráðs Hríseyjar 14. desember 2016 og skýrslu hverfisráðs Hríseyjar á aðalfundi 07. júní 2017. Segir í fundargerð að það stefni í að íbúðarhúsnæði stafi hætta ef ekkert verður gert næstu árin, „þar sem mikil sjór er farinn að ganga á land og þá sérstaklega í hvössum norðan- og norðaustanáttum.“


Athugasemdir

Nýjast