Hraðamyndavélar við Stórholt teknar í notkun

Tvær hraðamyndavélar teknar í notkun á Hörgárbraut/Hringvegi í gegnum Akureyri á morgun. Ekki er tek…
Tvær hraðamyndavélar teknar í notkun á Hörgárbraut/Hringvegi í gegnum Akureyri á morgun. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða, hraða- eða akstur gegn rauðu ljósi. Mynd á fésbókarsíðu lögreglunnar.
Tvær hraða- og rauðljósamyndavélar verða teknar í notkun á Hörgárbraut/Hringvegi í gegnum Akureyri,  á morgun, 19. október.
Vélarnar eru staðsettar við ljósastýrða gönguþverun við Stórholt. Búnaðurinn var settur upp síðastliðið vor og er nú kominn í fulla virkni.
Uppsetning vélanna er liður í umferðaröryggisáætlun stjórnvalda og er tilgangurinn sá að fækka umferðarslysum með því að draga úr ökuhraða og fækka brotum við akstri gegn rauðu ljósi á þjóðvegum. Umferðaröryggisáætlun er hluti Samgönguáætlunar.
Lögreglan á Norðurlandi eystra, Akureyrarbær og Vegagerðin annast uppsetningu og rekstur myndavélanna.
Um er að ræða stafræna myndatöku þar sem upplýsingar um hraðabrot og rauðljósaakstur eru sendar samstundis til lögreglunnar. Ekki er tekin mynd nema um brot sé að ræða segir á facebooksíðu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra.

Athugasemdir

Nýjast