Nýtt hraðamet var slegið á flugleiðinni á milli Reykjavíkur og Akureyrar á nýársdag. Þá flaug Bombardier Q400 vél Air Iceland Connect leiðina á aðeins 26 mínútum.
Almennt fara slíkar vélar leiðina á 32-35 mínútum en hagstæðar vindáttir réðu því hvernig nýársflugið gekk, sagði í frétt Morgunblaðsins um málið.