Hópuppsagnir hjá kísilveri PCC á Bakka

Kísilver PCC á Bakka. Mynd: epe
Kísilver PCC á Bakka. Mynd: epe

Samkvæmt heimildum Vikublaðsins kom stjórn PCC BakkaSilicon hf. á Húsavík saman í gær til að ræða yfirvofandi breytingar á rekstri kísilversins á Bakka. Forstjóri félagsins, Rúnar Sigurpálsson vildi ekki tjá sig um málið þegar blaðamaður leitaði eftir því í gærkvöldi en starfsmenn verksmiðjunnar hafa verið boðaðir á fund sem hófst nú klukkan 15.

Sveitarstjóri Norðurþings, Kristján Þór Magnússon vildi heldur ekki tjá sig um það hvort sveitarstjórn hafi verið gert viðvart um yfirvofandi uppsagnir þegar blaðamaður leitaði eftir því í gærkvöld. Legið hefur fyrir um nokkurt skeið að til framleiðslustöðvunar gæti komið til þess að gera við báða ofna verksmiðjunnar, Boga og Birtu en brösulega hefur gengið að halda þeim í rekstri allt frá því að verksmiðjan hóf framleiðslu. Reglulega hefur þurft að slökkva á ofnunum vegna vandamála í stoðkerfum þeirra.

 Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags staðfesti í samtali við blaðamann í gær að honum hafi borist til eyrna efni fundarins og að stjórnendur kísilversins hafi óskað eftir því að stéttarfélagið sendi fulltrúa á fundinn. Hann vildi ekki tjá sig að öðru leiti en því að til stæði að tilkynna um ákveðnar breytingar sem óheppilegt væri að starfsfólk frétti af í gegnum fjölmiðla. Vikublaðið hefur hins vegar áreiðanlegar heimildir fyrri því að  tilkynnt verði um uppsagnir á fundinum með starfsfólki kísilversins sem hófst rétt í þessu. Heimildamaður blaðsins vissi ekki hversu margar uppsagnirnar yrðu en  að þær yrðu margar.

Hvorki fulltrúar sveitarstjórnar Norðurþings né stjórnendur kísilvers PCC á Bakka hafa viljað tjá sig um efni fundarins

Legið hefur fyrir að rekstur verksmiðjunnar hefur verið erfiður en greint var frá því í apríl að fimm lífeyrissjóðir og Íslandsbanki hefðu lækkað virði hlutafjár síns í kísilverinu um tæpa tvo milljarða vegna óvissu um starfsemi kísilversins. Fréttablaðið greindi frá niðurfærslum lífeyrissjóðanna og sagði svo frá tapi á rekstri kísilversins á fyrsta ársfjórðungi vegna framleiðslutaps. 

PCC hefur nú sent frá sér tilkynningu þar sem staðfest er að framleiðsla verði stöðvuð tímabundið vegna veru­legra nei­kvæðra áhrifa á verð og eft­ir­spurn kís­il­málms á heims­markaði. Er það rakið til áhrifa á kór­ónu­veirufar­aldr­in­um. Þá verður stór­um hluta starfs­fólks fyr­ir­tæk­is­ins sagt upp. Tekið er skýrt fram að um tíma­bundn­ar aðgerðir sé að ræða. Fé­lagið gerir ráð fyr­ir að end­ur­ráða starfs­fólk  þegar fram­leiðslan fari af stað.

„Það var erfitt að taka þessa ákvörðun og hefðum við fundið raun­hæfa leið til að forðast upp­sagn­ir hefðum við farið hana. Ég er hins veg­ar viss um að heims­markaður­inn muni taka við sér að nýju. Þegar það ger­ist mun­um við setja upp­gerða verk­smiðjuna aft­ur í gang og ráða aft­ur eins mikið af fólk­inu okk­ar og við get­um,“ segir Rúnar Sigurpálsson forstjóri kísilversins í tilkynningunni.

Á meðan slökkt verður á ofn­un­um verður viðhaldi og end­ur­bót­um á hreinsi­virki sinnt. Það fel­ur meðal ann­ars í sér að hluti þaks­ins verður fjar­lægður og nýj­um tækja­búnaði komið fyr­ir. Þess­ari viðhalds- og end­ur­bóta­vinnu ætti að vera lokið í ág­ústlok 2020.

Fréttin var uppfærð kl: 15:44


Athugasemdir

Nýjast