Kvenfélagskonurnar Sigrún Marinósdóttir og Þórdís Jónsdóttir frá Kvenfélagi Aðaldæla komu með góða gjöf til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík í síðustu viku nóvembermánaðar.
Höfðu þær meðferðis 10 flatskjái og heyrnartól að gjöf frá Kvenfélaginu. Fyrirtækin Víkurraf og Heimilistæki studdu við þessa höfðinglegu gjöf með því að fella niður alla álagningu á umræddum tækjum. Forstjóri HSN, Jón Helgi Björnsson tók við gjöfunum og þakkaði kærlega fyrir. Tækin koma sér sérlega vel og koma í stað gamalla túpu sjónvarpa sem eru komin á síðasta snúning.
Ómetanlegt er fyrir HSN að njóta velvilja sem þessa og kann stofnunin kvenfélaginu bestu þakkir. (hsn.is)