HNS fær góða gjöf frá Kvenfélagi Aðaldæla

Jón Helgi Björnsson tekur við gjöfunum fyrir hönd HNS. Mynd: hns.is
Jón Helgi Björnsson tekur við gjöfunum fyrir hönd HNS. Mynd: hns.is

Kvenfélagskonurnar Sigrún Marinósdóttir og Þórdís Jónsdóttir frá Kvenfélagi Aðaldæla komu með góða gjöf til Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík í síðustu viku nóvembermánaðar.

Höfðu þær meðferðis 10 flatskjái og heyrnartól að gjöf frá Kvenfélaginu. Fyrirtækin Víkurraf og Heimilistæki studdu við þessa höfðinglegu gjöf með því að fella niður alla álagningu á umræddum tækjum. Forstjóri HSN,  Jón Helgi Björnsson tók við gjöfunum og þakkaði kærlega fyrir. Tækin koma sér sérlega vel og koma í stað gamalla túpu sjónvarpa sem eru komin á síðasta snúning.

Ómetanlegt er fyrir HSN að njóta velvilja sem þessa og kann stofnunin kvenfélaginu bestu þakkir. (hsn.is)

Nýjast