Hlíðarfjall- Nýir snjótroðarar

Stærsta flóðið sem komið var af stað í morgun kom úr Mannshrygg og sést hér fyrir miðri mynd.    Myn…
Stærsta flóðið sem komið var af stað í morgun kom úr Mannshrygg og sést hér fyrir miðri mynd. Mynd akureyri.is

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli fékk í morgun til umráða tvo glænýja og öfluga snjótroðara sem verða komnir á beltin og byrjaðir að troða strax á morgun. Talsvert hefur snjóað síðustu daga og voru snjóhengjur á efstu fjallabrúnum ekki álitlegar. Nú þegar tveir nýir troðarar eru komnir í gagnið verður einn af þeim gömlu seldur og annar notaður í flutninga og sprengivinnu. Þá verða samtals fjórir öflugir troðarar í notkun á skíðasvæðinu og einn í flutningum.

Snemma í morgun var því gripið til þess ráðs að nota litlar sprengjur til að setja af stað snjóflóð. Fjögur snjóflóð hlupu af stað og var eitt þeirra sýnu stærst eða á að giska 200 metrar á breidd. Vonast er til að þessar aðgerðir dragi mjög úr snjóflóðahættu og auki öryggi skíðafólks til mikilla muna.

Snjóagirðingar á skíðasvæðinu hafa verið notaðar til að hefta snjó þannig að hann fjúki ekki allur í burtu jafnóðum. Það hefur gengið gríðarlega vel og síðustu daga hefur verið unnið að því að ýta úr snjógirðingunum, jafna úr snjónum og þétta í brekkum. Með þessu móti er horft til daganna fram undan og reynt að tryggja að færið verði gott um helgina jafnvel þótt þá megi búast við hláku um tíma.

„Það er kalt núna og gíðarlega gott færi, eiginlega stórkostlegt skíðaveður,“ segir Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður í Hlíðarfjalli. „Sjálfan blóðlangaði mig á skíði í morgun en verð auðvitað að sinna rekstrinum og skipuleggja næstu daga. Það gæti brugðið til beggja vona um helgina því veðurspáin gerir ráð fyrir hálfgerðum stormi aðfararnótt laugardagsins með asahláku. Þá verður unnið dag og nótt við að undirbúa laugardaginn því síðan lægir hratt og byrjar aftur að kólna. Ég geri mér því vonir um að við getum haft opið eins og venjulega á laugardaginn og sunnudagurinn lítur vel út.“

Opið er í Hlíðarfjalli til kl. 19 í dag og á morgun, fimmtudag, frá kl. 14-19.

Frá þessu er sagt á heimasíðu Akureyrar www.akureyri.is


Athugasemdir

Nýjast