Hildur Hauksdóttir enskukennari við Menntaskólann á Akureyri er í hópi fimm kennara sem í gær hlutu viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf.
Menntavísindasvið Háskóla Íslands veitti fimm kennurum viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands í gær, 1. júní. Verðlaunin eru afrakstur kynningarátakisins „Hafðu áhrif“ sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir á vormánuðum en þar gafst almenningi kostur á að tilnefna eftirminnilega kennara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Menntavísindasviði HÍ.
„Viðtökurnar voru afar góðar en um 350 kennarar á öllum skólastigum voru tilnefndir af nærri 800 hundruð manns. Niðurstaðan var sú að veita fimm framúrskarandi kennurum á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi viðurkenningar fyrir framlag þeirra til kennslu,“ segir jafnframt í tilkynningunni.
Þeir kennarar sem hlutu viðurkenningu að þessu sinni voru: Ásthildur Kjartansdóttir Breiðagerðisskóla, Hildur Hauksdóttir Menntaskólanum á Akureyri, Nichole Leigh Mosty Leikskólanum Ösp, Þorgerður Ingólfsdóttir Menntaskólanum við Hamrahlíð og Örn Arnarson Heiðarskóla – Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. /epe.