Hildur Hauksdóttir úr MA er framúrskarandi kennari

Á myndinni eru frá vinstri: Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands, Ásthildur Kjartansdóttir, …
Á myndinni eru frá vinstri: Jón Atli Benediktsson rektor Háskóla Íslands, Ásthildur Kjartansdóttir, Hildur Hauksdóttir, Fríða Bjarney Jónsdóttir sem tók við verðlaununum fyrir hönd Nichole Leigh Mosty, Þorgerður Ingólfsdóttir, Örn Arnarson og Jóhanna Einarsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands.

Hildur Hauksdóttir enskukennari við Menntaskólann á Akureyri er í hópi fimm kennara sem í gær hlutu viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf.

Menntavísindasvið Háskóla Íslands veitti fimm kennurum viðurkenningar fyrir framúrskarandi störf við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands í gær, 1. júní. Verðlaunin eru afrakstur kynningarátakisins „Hafðu áhrif“ sem Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir á vormánuðum en þar gafst almenningi kostur á að tilnefna eftirminnilega kennara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Menntavísindasviði HÍ.

„Viðtökurnar voru afar góðar en um 350 kennarar á öllum skólastigum voru tilnefndir af nærri 800 hundruð manns. Niðurstaðan var sú að veita fimm framúrskarandi kennurum á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi viðurkenningar fyrir framlag þeirra til kennslu,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Þeir kennarar sem hlutu viðurkenningu að þessu sinni voru: Ásthildur Kjartansdóttir Breiðagerðisskóla, Hildur Hauksdóttir Menntaskólanum á Akureyri, Nichole Leigh Mosty Leikskólanum Ösp, Þorgerður Ingólfsdóttir Menntaskólanum við Hamrahlíð og Örn Arnarson Heiðarskóla – Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. /epe.

 

Nýjast