Hertar sóttvarnareglur-áhrif á þjónustu Akureyrarbæjar

Akureyri
Akureyri

Grunnskólum verður lokað frá og með deginum í dag vegna hertra sóttvarnaráðstafana stjórnvalda. Sama gildir um sundlaugar og önnur íþróttamannvirki. Grunnskólar Akureyrarbæjar verða lokaðir fram að páskum, en starfsemi leikskóla verður áfram með sama hætti og verið hefur. Foreldrar fá nánari upplýsingar um skólastarf frá einstökum skólum. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Sundlaugum bæjarins verður lokað sem og öðrum íþróttamannvirkjum. Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli er þó til skoðunar, það er hvort hægt verði að hafa hluta þess opið með takmörkunum og er rétt að fylgjast með heimasíðu og facebook-síðu Hlíðarfjalls. Amtsbókasafnið lokar en boðið verður upp á pantanir líkt og í síðustu lokun. Listasafnið verður opið með takmörkunum.

Þjónustuver í Ráðhúsi verður opið áfram en íbúar eru hvattir til að koma erindum sínum á framfæri í gegnum tölvupóst eða síma eins og kostur er. Þá er tilvalið að nota rafrænar lausnir eins og netspjall og þjónustugátt hér á heimasíðunni. Almennt verður starfsfólk á skrifstofum bæjarins við vinnu heima næstu daga og vikur.

Stjórnendur Akureyrarbæjar vinna nú að því að meta enn frekar áhrif á starfsemi og þjónustu.


Athugasemdir

Nýjast