Hermann Jón tekur sæti sitt í bæjarstjórn Akureyrar

Hermann Jón Tómasson bæjarstjóri á Akureyri og oddviti Samfylkingarinnar hefur ákveðið að taka sæti sitt í bæjarstjórn. Samfylkinginn tapaði miklu fylgi í kosningunum á laugardag og tveimur bæjarfulltrúum af þremur og hefur Hermann Jón verið að íhuga sína stöðu í kjölfarið en nú komist að niðurstöðu. "Mér finnst ekki rétt að hlaupast undan merkjum við þessar aðstæður og mun því starfa ótrauður áfram að því verkefni sem mér var falið," segir Hermann Jón m.a. í yfirlýsingu sem hann sendi félögum sínum í dag.  

Yfirlýsingin sem Hermann Jón sendi félögum sínum í bæjarmálahópi Samfylkingarinnar er svohljóðandi:

"Á undanförnum árum hef ég notið trausts félaga minna í Samfylkingunni á Akureyri til þess að fara fyrir lista flokksins í sveitarstjórnarkosningum. Til þess var ég valinn í lokuðu prófkjöri fyrir kosningarnar 2006 og í opnu prófkjöri sem fram fór í byrjun þessa árs. Í því prófkjöri sóttist enginn annar eftir oddvitasætinu. Ég er þakklátur fyrir þetta traust og hef lagt á mig mikla vinnu fyrir flokkinn minn til að reyna að endurgjalda það.

Samfylkingin á Akureyri fékk ekki brautargengi í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum og fylgið að þeim loknum er langt í frá ásættanlegt. Á því eru ýmsar skýringar en sem oddviti listans í kosningunum ber ég að sjálfsögðu mikla ábyrgð á þessum árangri. Hana mun ég axla með því að vinna með félögum mínum í Samfylkingunni að því starfi sem framundan er og halda þannig trúnað við stuðningsmenn Samfylkingarinnar sem veittu mér umboð til starfa.

Orustan tapaðist en stríðið heldur áfram. Framundan er mikið uppbyggingarstarf og ég tel mig geta lagt mikið að mörkum til þess auk þess sem ég hef góðar forsendur til þess að halda uppi öflugu aðhaldi gagnvart nýjum meirihluta og vekja athygli á málstað og hugmyndum Samfylkingarinnar. Mér finnst ekki rétt að hlaupast undan merkjum við þessar aðstæður og mun því starfa ótrauður áfram að því verkefni sem mér var falið.  Félagsmenn Samfylkingarinnar munu síðan fá sitt lýðræðislega tækifæri til að velja þann oddvita sem þeir telja heppilegt að leiði hópinn þegar nær dregur næstu kosningum.  

Ég vonast eftir stuðningi ykkar við þessa ákvörðun. Saman náum við vopnum okkar að nýju."

Nýjast