Herbert hefur gengið 100 kílómetra á Þórsvellinum

Þegar Þórsvöllurinn var endurvígður eftir gagngerar breytingar var tekin sú ákvörðun að opna völlinn fyrir almenningi, þ.e. til göngu á hlaupabrautunum. Þetta hefur mælst afar vel fyrir og hefur fólk tekið þessu fegins hendi og æ fleiri mæta daglega á völlinn til að ganga. Einn af mörgum, sem nýtir sér aðstöðuna er Herbert Jónsson, heiðursfélagi Íþróttafélagsins Þórs.  

Herbert hóf að ganga reglulega á vellinum í janúar og sl. föstudag náði hann þeim áfanga að hafa gengið 100 kílómetra á vellinum. Herbert sagði í spjalli við heimasíðu Þórs, að hann héldi dagbók þar sem hann skráði allar sínar ferðir inn. ,,Ég geng 5 daga vikunnar 4-5 hringi og stundum meira en aldrei minna en þetta. Aðspurður sagði Herbert það mjög gott að ganga á svæðinu. ,,Undirlagið er svo rennislétt að maður er ekki í neinni hættu á að reka tærnar í neitt engin bílaumferð, hljóðlátt umhverfi og svo er undirlagið svo mjúkt".

Árin 1994 og 1995 þurfti Herbert að fara í aðgerðir þar sem setja þurfti gervilið í báðar mjaðmir þar sem hann átti orðið erfitt með gang. ,,Fyrir fólk eins og mig er þetta frábært. Ég gekk fyrst alltaf inni í Boganum en nú geng ég eingöngu hér úti og næ mér í ferskt loft í leiðinni. Já ég get mælt með því við fólk að koma hingað og nýta sér þessa aðstöðu og reyndar er þetta orðin nokkuð stór hópur fólks sem kemur hér daglega" sagði Herbert.  

Á heimasíðu Þórs, er fólk jafnframt hvatt til þess að nýta sér aðstöðuna á Þórsvellinum og alveg kjörið að koma á morgnanna í göngu og staldra svo við í Hamri á eftir og fá sér kaffisopa og spjalla við aðra gesti sem eiga leið á Þórsvöllinn og í Hamar.

Nýjast