Heldur færri fæðingar á FSA í ár en í fyrra

Fyrstu sex mánuði ársins voru fæðingar á fæðingardeild Sjúkrahússins á Akureyri samtals 185, eða heldur færri en á sama tímabili í fyrra, þegar fæðingar voru alls 234. Á síðasta ári var mikið að gera á fæðingardeild FSA en þá var þar metfjöldi fæðinga.  

Alls urðu fæðingarnar 515 árið 2010 og börnin 521 en tvíburafæðingarnar urðu 6 talsins. Ingibjörg H. Jónsdóttir yfirljósmóðir segir ljóst að metið frá í fyrra verði ekki slegið í ár og líklegra að fjöldinn verði svipaður og í meðalári, eða 400-420 fæðingar.

Nýjast