Vörukaup eru áætluð um 66 milljónir króna og hækka um tæp eina milljón, sem skýrist af hækkun hráefniskostnaðar við mötuneytin. Þjónustukaup eru áætluð rúmar 513 milljónir króna og lækka um 101.000 krónur, þrátt fyrir að húsaleiga hækki um 9 milljónir. Búið er að hagræða töluvert í rekstri leikskólanna því barnafjöldinn verður sá sami eða um 1060 og ekki styttist sá tími sem börnin eru daglega í leikskólanum.
Gjaldskrá vegna vistunar barna var leiðrétt um 8% frá og með 1. janúar 2010. Þannig taka foreldrar aðeins meiri þátt í kostnaði við leikskólana en áður. Þessi gjaldskrá hefur verið óbreytt síðan sumarið 2005 þegar hún var færð niður um 25%. Foreldrar standa því undir u.þ.b. 15% af kostnaði við rekstur leikskólans. Gjaldskrá vegna fæðis hækkaði um 10% og er sú breyting eingöngu tilkomin vegan verðlagshækkana á hráefni. Verðlag vegan fæðis er þannig stillt af í leikskólum að tekjur standi undir hráefniskostnaði. Annan kostnað af rekstri mötuneytanna ber Akureyrarbær.
Stöðugildafjöldi í leikskólum fer eftir fjölda barna, aldri þeirra og lengd skóladags hvern dag. Þá hefur fjöldi leikskóla áhrif á fjölda stöðugilda í stjórnun og öðrum störfum. Stöðugildafjöldinn hefur breyst lítið og verða breytingarnar fyrst og fremst raktar til þess að yngri börn eru að koma inn sem kallar á fleiri starfsmenn. Alls eru stöðugildin rúmlega 208 í leikskólum Akureyrarbæjar og til viðbótar samtals 37 stöðugildi í einkareknu leikskólunum Hlíðarbóli og Hólmasól. Hlutfall fagmenntaðra starfsmanna í leikskólunum hefur vaxið stöðugt á undanförnum árum. Reiknað er með að hlutfall fagmenntaðra starfsmanna á deild verði um 89% á þessu ári. Þetta sama hlutfall var 40% árið 1999 en frá þeim tíma hefur stöðugildafjöldi á deild farið úr 95,43 í 155,6. Þessi breyting hefur einnig leitt af sér meiri stöðugleika í starfsmannahaldinu, sem gerir allt faglegt starf leikskólanna markvissara og öflugra. Þetta kemur fram í Skóla-akri, vefriti skóladeildar.