Hanna Rósa leiðir L-lista í sameinuðu sveitarfélagi

Hanna Rósa Sveinsdóttir leiðir L-lista Lýðræðisflokksins í sameinuðu sveitarfélagi Hörgárbyggðar og Arnarneshrepps í sveitarstjórnarkosningunum 29. maí nk. Tveir framboðslistar verða því í boði í sveitarfélaginu, en áður hafði J-listi Samstöðulistans verið kynntur.  

L-listi Lýðræðislistans er þannig skipaður:

1. Hanna Rósa Sveinsdóttir, sérfræðingur, Hraukbæ

2. Sunna Hlín Jóhannesdóttir, kennari, Ósi

3. Helgi Þór Helgason, bóndi Bakka

4. Jón Þór Benediktsson, ferðaskipuleggjandi, Ytri- Bakka

5. Elísabeth J. Zitterbart, ljósmóðir, Ytri-Bægisá II

6. Guðmundur Sturluson, bóndi, Þúfnavöllum

7. Líney Snjólaug Diðriksdóttir, bóndi, Tréstöðum

8. Þórður Ragnar Þórðarson, bóndi, Hvammi

9. Hannes Gunnlaugsson, bóndi, Ytra-Brekkukoti

10. Anna Dóra Gunnarsdóttir, leiðbeinandi, Birkihlíð 3

Nýjast