Hámarkshraði hækkaður í 50 km í þremur safngötum

Á fundi skipulagsnefndar Akureyrar í gær, var lagður fram mótmælalisti með 51 nafni, þar sem óskað er eftir því að skipulagsdeild endurskoði á ákvörðun sína um 30 km hámarkshraða á Skarðshlíð, Vestursíðu og Skógarlundi.  

Skipulagsnefnd leggur til að gerðar verði breytingar á fyrri ákvörðun um 30 km hámarkshraða og verði, til bráðabirgða, 50 km hámarkshraði á eftirfarandi safngötum: Miðsíðu, Vestursíðu, Merkigili. Aðrar safngötur haldast óbreyttar með 30 km hámarkshraða. Ástæða þessa er að ekki verður farið í endurskoðun á leiðakerfi SVA að sinni en 30 km breytingar á þessum safngötum kalla á slíka endurskoðun.

Nýjast