Halló, við erum frá Úkraínu!

Frá æfingu                                Mynd Rakel Hinriksdóttir
Frá æfingu Mynd Rakel Hinriksdóttir

Í dag þriðjudaginn 28. júní kl. 18 verður boðið upp á frumsamið dansverk í Menningarhúsinu Hofi til styrktar börnum og læknum í Úkraínu. Sýningin er öllum opin og hentar sérstaklega vel fjölskyldum og börnum.

Skipuleggjendur eru dansarinn Alona Perepelytsia, fjölskylda hennar og flóttamenn frá Úkraínu. Hópurinn hefur þegar sýnt á Austurlandi og hyggst sýna nokkrum stöðum á landinu og nú eru þau mætt til Akureyrar í tengslum við Listasumar.

 Á Íslandi búa nú margir skapandi einstaklingar frá Úkraínu og hópurinn sem stendur að sýningunni vildi finna leið til að aðstoða samlanda sína í heimalandinu og um leið að þakka íslensku þjóðinni fyrir einlægar móttökur á flóttafólki þaðan. Allt listafólkið gefur vinnu sína sem framlag til söfnunarinnar.

 Sýningin hefst kl. 18 og er aðgangur er ókeypis. Tekið verður á móti frjálsum framlögum við innganginn og þeir sem vilja styrkja söfnunina geta gert það með innleggi á söfnunarreikning hópsins:

Kennitala: 310391-3369

Reikningsnúmer: 0569-26-003103

 Viðburðurinn er hluti af Listasumri og styrktur af Akureyrarbæ í samvinnu við Menningarhúsið Hof.


Athugasemdir

Nýjast