Haldið upp á fullveldisdaginn í Háskólanum á Akureyri

Á morgun, miðvikudaginn 1. desember, verður venju samkvæmt haldið upp á fullveldisdaginn í Háskólanum á Akureyri, um leið og því er fagnað að áratugur er liðinn frá því að útilistaverkið Íslandsklukkan eftir Kristinn E. Hrafnsson var vígt og fært Akureyringum að gjöf frá Akureyrarbæ. Í tilefni af 10 ára afmæli Íslandsklukkunnar var efnt til smásagnakeppni meðal barna í 5. bekk í samstarfi HA og Akureyrarbæjar við grunnskóla Akureyrar.  

Þema keppninnar var Framtíðarsýn-Akureyri 2020 en sigurvegari keppninnar hlýtur þann heiður að hringja Íslandsklukkunni á morgun. Fyrsta sætið hlaut Viðar Guðbjörn Jóhannsson, Glerárskóla með söguna „á leið til hins betra". Annað sæti hlaut Sigurlaug Birta Helgadóttir, Brekkuskóla, með söguna „Framtíðarsýn 2020 - Enika"  og þriðja sætið hlaut Ari Orrason Brekkuskóla með söguna „Framtíðarsýn 2020 - Klukkumálið". Alls bárust 78 sögur í keppnina.

Dagskráin á morgun, 1. desember,  hefst á málstofu  kl. 14.30-16.00 í hátíðarsal Háskólans á Akureyri  N101 sem ber yfirskriftina Íslandsklukkan, framtíðin og sjálfstæðið. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, flytur erindið  Framtíð íslenskra háskóla. Njörður P. Njarðvík  prófessor emeritus  flytur erindið Mín klukka, klukkan þín, kallar oss heim til sín og Geir Kristinn Aðalsteinsson forseti bæjarstjórnar Akureyrar flytur erindið Akureyri í  framtíðinni. Að lokinni málstofu eða klukkan 16.15 verður safnast saman við Íslandsklukkuna þar sem Stefán B. Sigurðsson rektor flytur ávarp og Viðar Guðbjörn Jóhannsson sigurvegari smásagnakeppninnar hringir Íslandsklukkunni 10 sinnum með aðstoð Jóhönnu Guðrúnar Magnúsdóttur formanns félags stúdenta við HA, stúdentar við HA munu bera logandi kyndla og lífga upp á svæðið. Að því loknu eða kl. 16.30 er öllum boðið í hátíðarsal Háskólans á Akureyri.

Þar verður boðið upp á kakó, kaffi og smákökur. Jafnframt fer fram sýning á smásögunum sem bárust í keppnina. Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri mun ávarpa hátíðina og síðan mun hann og Stefán B. Sigurðsson rektor  afhenda sigurvegurum smásagnakeppninnar sem lentu í fyrsta, öðru og þriðja sæti bókarverðlaun. Barnakór Akureyrarkirkju mun syngja nokkur lög undir stjórn  Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur. Viðar Guðbjörn Jóhannsson sigurvegari smásögukeppninnar mun lesa upp  vinningssöguna sína og Björn Þorláksson rithöfundur og bæjarlistamaður mun ræða við gesti og hvetja ungu kynslóðina til dáða. Skemmtileg og notaleg stemming mun einkenna hátíðina  og eru allir hvattir til að mæta á hátíðarhöldin, gera sér glaðan dag og hefja jólamánuðinn á huggulegum nótum, segir í fréttatilkynningu.

Nýjast