Fundurinn samanstendur af stuttu erindi um aðdraganda greiðsluverkfalls,
tilhögun, markmið og tilgang auk umræðna fundarmanna. Borin verður upp
ályktun fundarins og leitað samþykkis fundarmanna. Í kjölfarið verður sett
af stað rafræn kosning á internetinu um hvort stjórn HH fái umboð til
skipunar verkfallsstjórnar. Fáist slíkt umboð hjá félagsmönnum mun sú
verkfallsstjórn sem stjórnin setur saman ákveða nánar um framkvæmd
greiðsluverkfallsins.
Eftirfarnir staðir eru fundarstaðir:
Fundartími: *23. júní 2009 kl. 20:00*
Reykjavík: *Iðnó við tjörnina*
Keflavík: *Frumleikhúsið Vesturbraut 17*
Akureyri: *Um borð í Húna *
Selfoss: *800 barinn*
*Golfhúsið Snússa á Flúðum*