Ávöxtun eignasafna hefur sömuleiðis gengið vel, til að mynda hefur Áskriftarsjóður ríkisverðbréfa hækkað um rúm 13% frá áramótum og alls um 20% síðustu 12 mánuði. Sævar Helgason, framkvæmdastjóri Íslenskra verðbréfa, er að vonum ánægður með árangurinn. „Íslensk verðbréf eru í dag elsta eignastýringarfyrirtæki landsins og byggja á yfir 20 ára reynslu af ávöxtun fjármuna á fjármálamarkaði. Félagið er sérhæft fjármálafyrirtæki á sviði eignastýringar og markmið þess er að hámarka hag viðskiptavina og tryggja þeim sem besta ávöxtun. Við stundum hvorki útlánastarfsemi né hefðbundna fjárfestingarbankastarfsemi sem gæti aukið líkur á hagsmunaárekstrum. Við finnum að viðskiptavinir okkar, gamlir og nýir, meta þessa sérstöðu mikils " segir Sævar.
Hann nefnir jafnframt að opnun skrifstofu að Sigtúni 42 í Reykjavík sumarið 2009 hafi verið heillaspor. „Viðtökurnar hafa verið góðar og stöðugur vöxtur í heimsóknum og fyrirspurnum. Nú starfa þar þrír starfsmenn á eignastýringarsviði, en þeim kann að fjölga fljótlega fari svo fram sem horfir."
Íslensk verðbréf eru sérhæft eignastýringarfyrirtæki sem hófu starfsemi árið 1987. Starfsmenn eru 23 talsins, höfuðstöðvar þess eru á Akureyri en jafnframt starfrækir félagið skrifstofu í Reykjavík., segir í fréttatilkynningu.