Hafni borgin flugvellinum hafnar hún líka skyldum sínum sem höfuðborg landsins

Hermann Jón Tómasson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrum bæjarstjóri á Akureyri segir að Reykjavíkurflugvöllur sé mjög vel staðsettur þar sem hann er. "Góðar flugsamgöngur milli Reykjavíkur og helstu þéttbýlisstaða landsins er réttlæting fyrir þeirri miklu uppbyggingu á þjónustu, t.d. heilbrigðisþjónustu, sem aðeins er að finna í Reykjavík en sem er byggð upp og veitt á kostnað allra landsmanna."  

Hann segir að með sama hætti séu góðar flugsamgöngur réttlæting fyrir því að stofnanir ríkisins eru meira og minna staðsettar á þessu sama svæði. "Hafni borgin flugvellinum þá hafnar hún líka skyldum sínum sem höfuðborg landsins," segir Hermann Jón í viðtali í Vikudegi.

Nýjast