Hermann Jón Tómasson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar og fyrrum bæjarstjóri á Akureyri segir að Reykjavíkurflugvöllur sé mjög
vel staðsettur þar sem hann er. "Góðar flugsamgöngur milli Reykjavíkur og helstu þéttbýlisstaða landsins er réttlæting fyrir
þeirri miklu uppbyggingu á þjónustu, t.d. heilbrigðisþjónustu, sem aðeins er að finna í Reykjavík en sem er byggð upp og veitt
á kostnað allra landsmanna."
Hann segir að með sama hætti séu góðar flugsamgöngur réttlæting fyrir því að stofnanir ríkisins eru meira og minna
staðsettar á þessu sama svæði. "Hafni borgin flugvellinum þá hafnar hún líka skyldum sínum sem höfuðborg landsins," segir Hermann
Jón í viðtali í Vikudegi.