Bæjarstjórn Akureyrar lýsir yfir áhyggjum af stöðu raforkumála í Eyjafirði. Í bókun bæjarstjórnar segir að ástand orkumála á svæðinu sé og hafi verið mjög viðkvæmt og hamlandi til atvinnuuppbyggingar sem þarfnast raforku eins og t.d. létts iðnaðar. Þá lenda fyrirtæki í firðinum reglulega í vandræðum vegna ótryggra raforkuflutninga inn á svæðið ásamt spennuflökti sem hefur valdið mörgum fyrirtækjum vandræðum og jafnvel tjóni.
„Bæjarstjórn Akureyrar gerir athugasemdir við seinagang stjórnvalda og opinberra aðila í þessum málum og skorar á tilvonandi þingmenn að beita sér í málinu en afar mikilvægt er að jafna aðstöðu landsmanna til atvinnuuppbyggingar og búsetu. Verði ekki hægt að tryggja raforku inn á svæðið frá vatns- og gufuaflsvirkjunum á næstu þremur árum þá sér bæjarstjórn ekki annan möguleika en að reistar verði díeselrafstöðvar sem geti annað fyrirsjáanlegri þörf á Eyjafjarðarsvæðinu á komandi árum, þar til umhverfisvænni lausnir verða að veruleika,“ segir í bókun bæjarstjórnar sem samþykkt var samhljóða.