27. maí, 2008 - 15:11
Fréttir
Byggðastofnun hefur gengið frá styrkveitingum og hlutafjárframlögum vegna mótvægisaðgerða ríkistjórnarinnar til eflingar
atvinnuþróunar og nýsköpunar 2008 og 2009.
Alls voru 200 milljónir króna til úthlutunar, 100 milljónir króna fyrir hvort ár. Alls bárust 253 umsóknir samtals að
fjárhæð 1.528. milljónir króna hlutu 69 verkefni styrk. Nokkrar umsóknir eru til frekari skoðunar. Hæstu styrkina hlutu Þóroddur ehf.
vegna uppbyggingar seiðaeldisstöðvar í Tálknafirði, JE-Vélaverkstæði ehf. Siglufirði, vegna þróunar á nýrri gerð af
snekkju, Vélfag ehf. Ólafsfirði, þróun og smíði roðvélar, 5 milljónir hvert verkefni. Við mat á umsóknum var einkum
tekið tillit til hlutfalls starfa í veiðum og vinnslu á viðkomandi svæði, nýsköpunargildis, gæða og mögulegs árangurs verkefna
auk fjölda starfa sem þeim er ætlað að skapa. Byggðastofnun mun gera samninga við styrkþega um framvindu og árangursmat verkefnanna en styrkirnir
verða greiddir út í tvennu lagi, á árunum 2008 og 2009.