Hægt verði að hefja framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng sem fyrst
Á fundi sveitarstjórnar Eyjafjarðarsveitar, sem haldinn var í gær var eftirfarandi bókun samþykkt: Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar lýsir ánægju sinni með að útreikningar sýni að sanngjörn veggjöld geti fjármagnað Vaðlaheiðargöng. Bygging ganganna mun hleypa lífi í atvinnulífið á Norðausturlandi og styrkir byggð á svæðinu. Sveitarstjórn skorar því á Alþingi, ríkisstjórn og þingmenn Norðausturkjördæmis að sjá til þess að hægt sé að hefja framkvæmdir við göngin sem allra fyrst.