Guðni forseti í smitgátt eftir heimsókn á Svalbarðsströnd

Eliza Reid forsetafrú ásamt Guðna forseta. Mynd/forseti.is
Eliza Reid forsetafrú ásamt Guðna forseta. Mynd/forseti.is

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands er nú í smitgátt eftir heimsókn sína í Valsárskóla á Svalbarðsströnd. Nemendur skólans hafa greinst með Covid-19 veiruna og þarf forsetinn því að vera í smitgátt næstu daga.

Hann sendir krökkunum hlýjar kveðjur með von um góðan bata.

„Ég sendi krökkunum nyrðra hlýjar kveðjur, þakka aftur fyrir góðar móttökur og óska þeim, sem hafa smitast af veirunni, góðs bata. Einhverjum fundum og viðburðum þarf ég að fresta en við finnum lausnir á því,“ skrifar hann á facebooksíðu forsetaembættisins.


Athugasemdir

Nýjast