Grímuskylda í strætisvögnum

Mynd/Akureyri.is
Mynd/Akureyri.is

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra sem tók gildi á miðnætti kveður á um að nota beri andlitsgrímur sem hylja nef og munn þegar ekki er unnt að tryggja 2ja metra fjarlægðarmörk. Þetta gerir það að verkum að taka verður upp grímuskyldu í Strætisvögnum Akureyrar. Börn fædd 2005 eða síðar eru þó undanþegin þessu.

Farþegar eru beðnir að virða þetta og nota andlitsgrímu í strætó en þetta fyrirkomulag á einnig við um ferliþjónustu Akureyrarbæjar. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar. 


Athugasemdir

Nýjast