Grímseyingar mótmæla fyrirhugaðri fækkun ferjusiglinga

Á fundi bæjarráðs Akureyrar í morgun var lagður fram undirskriftalisti með nöfnum 56 Grímseyinga um ályktun sem  send var til samgönguráðuneytisins og Vegagerðarinnar. Þar mótmæla þeir harðlega fyrirhugaðri fækkun ferjusiglinga til Grímseyjar, úr þremur ferðum á viku niður í tvær.  

Þeir aðilar í eynni sem selja fisk á markað sjái fram á stórlækkað fiskverð vegna þess að fiskurinn kemst seinna á markað frá veiðum, eða allt upp í fimm daga gamall þegar lengst er á milli ferða. Grímseyingar benda á að ferjan sé þeirra þjóðvegur 1 og þykir þeim það lágmarks skilyrði fyrir búsetu í eynni að ferðirnar verði áfram þrjár á viku eins og verið hefur undanfarin ár, segir ennfremur í ályktuninni. Bæjarráð tekur heilshugar undir mótmæli Grímseyinga og lýsir yfir áhyggjum af áhrifum fyrirhugaðra breytinga á atvinnustarfsemi í eyjunni.

Nýjast