Greifi hjálpar Bjarneyju

Bæjarstjórinn á Akureyri, Hermann Jón Tómasson, afhenti nýlega leyfi fyrir 500. hundinum á Akureyri en þar er um að ræða sérþjálfaðan hund sem mun aðstoða fatlaða stúlku í bænum. Bjarney Guðrún Jónsdóttir er átta ára og með arfgengan vöðvasjúkdóm og skerta hreyfigetu og þarf því mikla aðstoð við ýmsar daglegar athafnir.  

Nú hefur Bjarney Guðrún fengið til liðs við sig hann Greifa, sérþjálfaðan hund sem hjálpar henni við margt sem hún á erfitt með að leysa sjálf. Hann getur hjálpað henni úr fötunum og sótt ýmsa hluti svo sem leikföng og farsímann hennar. Þegar bæjastjórinn á Akureyri afhenti Bjarneyju leyfið fyrir Greifa hafði hún aðeins haft hundinn hjá sér í fimm daga og var ótrúlegt hvað tengslin voru orðin náin á svo skömmum tíma. En það kemur foreldrum hennar ekki á óvart því Bjarney hefur mikinn áhuga á dýrum og hefur lengi langað í hund. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.

Nýjast