Það er afskaplega gott í árferði eins og þessu að skulda lítið og það vill svo heppilega til að við erum í þeim hópi, skuldum lítið, segir Guðný Sverrisdóttir sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi. Fjárhagsáætlun hreppsins var samþykkt á fundi sveitarstjórar nýlega. Guðný segir sveitarfélagið standa tiltölulega vel og samkvæmt áætluninni er gert ráð fyrir að reksturinn skili tæplega 7,8 milljónum króna.
Tekjur eru áætlaðar ríflega 318,6 milljónir og gjöldin tæplega 308 milljónir. Gert er ráð fyrir að fjárfestingar nemi um 17 milljónum króna. Helstu framkvæmdir á árinu verða við byggingu við leikskólann og eins er fyrirhugað að kaupa nýja dráttarvél. Miklar framkvæmdir voru í sveitarfélaginu á þessu ári, m.a. við sundlaug, tjaldstæði og þá var unnið við malbikun, en heldur dregið úr á komandi ári. Það er alltaf nóg hægt að gera en við verðum að sníða okkur stakk eftir vexti, segir Guðný.
Gjaldskrár leik- og grunnskóla hafa verið endurskoðaðar og hækkað örlítið, en Guðný segir að þær taki mið af gjaldskrám sömu stofnana á Akureyri og hækki til samræmis við þær. Þá var gjaldskrá fyrir sorphirðu endurskoðuð og tekið upp gjald fyrir dýrahræ sem þarf að farga. Það er í samræmi við gjaldskrár í öðrum sveitarfélögum í Eyjafirði sem tekið hafa upp slíkt gjald. Guðný segir að settur hafi verið upp frystigámur fyrir dýrahræ í sveitarfélaginu, þegar hann er fullur er farið með innihaldið til brennslu á Húsavík. Við vonum auðvitað að ekki þurfi að fara margar ferðir, segir hún.