Önnur umferð Íslandsmótsins í enduró fór fram á svæði KKA á Akureyri sl. helgi. Keppendur frá KKA stóðu sig vel og sigruðu í tveimur flokkum. Björn Ómar Sigurðarson sigraði í baldursdeild og í tvímenningi sigruðu þeir Guðmundur H. Hannesson og Finnur Aðalbjörnsson.
Þá varð Anton Freyr Birgisson annar í keppni í baldursdeild, í 85cc flokki varð Hákon Birkir Gunnarsson í þriðja sæti og í flokki CC2 varð Bjarki Sigurðsson í öðru sæti.