Glerárdalur verði aðgengilegt útvistarsvæði

Fulltrúar L-listans í umhverfisnefnd Akureyrar hafa óskað eftir því að farið verði af stað með umsóknarferli við að gera framtíðarplan um nýtingu Glerárdals, með það fyrir augum að þar verði aðgengilegt útivistarsvæði fyrir almenning. Umhverfisnefnd samþykkti á fundi sínum í gær að skipa starfshóp um framtíðarnýtingu Glerárdals og tilnefndi fyrir sitt leyti Huldu Stefánsdóttur, Jón Inga Cæsarsson og Petreu Ósk Sigurðardóttur í starfshópinn og óskar eftir því við skipulagsnefnd að hún tilnefni tvo fulltrúa. Petrea Ósk B-lista óskaði bókað að hún fagni þessari ákvörðun L-lista. Hún telur nauðsynlegt áður en lengra er haldið að gefa hagsmunaaðilum kost á að koma á framfæri sínum sjónarmiðum líkt og í skýrslunni árið 2004.

Nýjast