Gilfélagið fagnar tímamótum

Pönkbandið Populus, Malpokar leyfðir, Deiglan 11. september 2021. Mynd Aðalsteinn Svanur Sigfússon.
…
Pönkbandið Populus, Malpokar leyfðir, Deiglan 11. september 2021. Mynd Aðalsteinn Svanur Sigfússon.

Gilfélagið á 30 ára afmæli um þessar mundir og í tilefni af því sýna félagar í Gilfélaginu verk sín í Deiglunni sal Gilfélagsins í Listagilinu á Akureyri og blása til hátíðar laugardaginn 16. október með léttri hátíðardagskrá og léttum veitingum. Hátíðin hefst kl. 17.00.

Félagasýningn stendur frá 14. - 19. október og er opin frá 17.00 - 20.00 virka daga og 14.00 - 17.00 helgina 16. - 17. október.

Gilfélagið var formlega stofnað af áhugafólki um menningarstarfsemi 30. nóvember 1991. Stofnun Gilfélagsins markaði upphaf að uppbyggingu Listagilsins á Akureyri, þegar félagið tók yfir hluta húsnæðis í Grófargili sem þá hafði llokið hlutverki sínu sem iðnaðrhúsnæði og stóð autt. Með stuðningi Akureyrarbæjar rekur Gilfélagið fjölnotasalinn Deigluna og hefur umsjón með gestavinnustofu. Markmið félagsins er að efla menningar- og listalíf í bænum, auka tengsl almennings við listir og koma á samskiptum norðlenskra listamanna við innlenda og erlenda listamenn.

Í tilefni 30 ára afmælisins stendur félagið fyrir nokkrum viðburðum og sýningum  á komandi mánuðum. Fyrsti viðburðurinn var “Malpokar leyfðir”, menningardagskrá Populus Tremula í Deiglunni þann 11. september, sem þótti takast sérlega vel. 8. jánúar opnar 30 ára sögusýning Gilfélagsins sem markar endalok 30 ára afmælishátíðahaldanna. Þar á milli eru aðrir menningar viðburðir á döfinni sem verða auglýstir þegar þar að kemur.

 

Gilfélagið lítur björtum augum til framtíðarinnar og hyggst vera virkt og mótandi afl í deiglu menningarframboðs á svæðinu um ókomin ár.


Athugasemdir

Nýjast