Gera atlögu að Atlantsolíu

Albert Þór Magnússon framkvæmdastjóri Atlantsolíu hefur sent frá sér yfirlýsingu, þar sem segir að gömlu olíufélögin geri nú atlögu að Atlantsolíu með því að lækka verð næst bensínstöðvum fyrirtækisins en láta landsbyggðina greiða hærra verð. Þannig greiði neytendur á landsbyggðinni um 5-7 kr. hærra verð í sjálfsafgreiðslu en þar sem stöðvar Atlantsolíu eru ekki. Þetta er raunin t.d. á stöðum eins og í Vestmannaeyjum, Hvammstanga, Sauðárkróki, Húsavík, Seyðisfirði, Borgarnesi, Eskifirði, Hvolsvelli. Augljóst er að afslættir ríkja í flestum tilvikum aðeins þar sem samkeppni fyrirtækisins nýtur við, annars staðar ekki. Hátterni gömlu olíufélaganna, sem augljóslega er beint gegn Atlantsolíu, skaðar samkeppni því beitt er hærri álagningu þar sem fyrirtækið hefur ekki stöðvar. Eins og dæmin hafa sýnt leiðir þetta til verri niðurstöðu fyrir neytendur fái samkeppnin ekki að njóta sín, segir í yfirlýsingunni. Forráðamenn Atlantsolíu hafa falið lögmönnum sínum að skoða réttarstöðu sína vegna þeirrar stöðu sem fyrirtækið hefur búið við undanfarið.

Nýjast